Allir vinir Guðs . . . ættu að leggja af mörkum það sem þeir geta, hversu fábrotin sem sú fórn kann að vera. Guð leggur ekki meiri byrðar á sálina en hún getur borið. Slík framlög verða að koma frá öllum miðstöðvum og öllum átrúendum . . . Ó vinir Guðs! Verið þess fullvissir, að vegna þessara framlaga hlýtur akuryrkja yðar, iðnaður og verslun margfalda blessun með liðveislu og góðum gjöfum. Sá sem vinnur eitt gott verk hlýtur tífalda umbun. Enginn vafi er á því, að hinn lifandi Drottinn mun ríkulega staðfesta þá sem gefa auð sinn á vegi hans.
Ó Guð, Guð minn! Upplýs brá sannra elskenda þinna og styrk þá með himneskum herskörum öruggs sigurs. Ger fætur þeirra stöðuga á þínum beina vegi og opna þeim hlið gjafa þinna með aldinni hylli þinni; því þeir eyða á þínum stigum því sem þú hefur gefið þeim, standa vörð um trú þína, setja traust sitt á minningu sína um þig, fórna hjörtum sínum sakir ástar á þér og halda eigi aftur af því sem þeir eiga vegna aðdáunar á fegurð þinni og í leit sinni að leiðum til að þóknast þér.
Ó Drottinn minn! Fyrirhuga þeim ríflegan skerf, áformað endurgjald og örugga umbun.
Vissulega ert þú sá sem viðheldur, hjálparinn, hinn örláti og gjafmildi, síveitandinn.
-`Abdu'l-Bahá