Ó Guð minn, meistari minn, takmark þrár minnar! Þessi þjónn Þinn óskar þess að sofa í skjóli miskunnar Þinnar og hvílast undir tjaldhimni náðar Þinnar. Hann biður um umönnun Þína og vernd.
Ég bið Þig, ó Drottinn minn, við auga Þitt, sem ekki sefur, að verja augu mín því að líta nokkuð nema Þig. Styrk sjón þeirra svo að þau geti greint tákn Þín og líti sjónhring opinberunar Þinnar. Þú ert Guð og frammi fyrir opinberun almættis Þíns hefur sjálfur kjarni máttarins skolfið.
Enginn er Guð nema Þú, hinn almáttugi og alknýjandi, hinn óskilyrti.
-Bahá'u'lláhHvernig get ég óskað mér svefns, ó Guð, Guð minn, meðan augu þeirra sem þrá Þig eru svefnvana vegna aðskilnaðar frá Þér, og hvernig get ég lagst til hvíldar þegar sálir elskenda Þinna eru sármæddar vegna fjarlægðar frá návist Þinni?
Ég hef, ó Drottinn minn, lagt anda minn og alla veru í hægri hönd máttar Þíns og verndar, legg höfuð mitt á koddann vegna máttar Þíns, og reisi það upp á ný samkvæmt vilja Þínum og velþóknun. Þú ert að sönnu sá er varðveitir og viðheldur, hinn almáttugi og voldugasti.
Við mátt Þinn! Ég óska ekki, hvort heldur í svefni eða vöku, annars en þess sem Þú óskar. Ég er þjónn Þinn og í Þínum höndum. Aðstoða mig af náð Þinni, að gera það sem dreifir ilmi velþóknunar Þinnar. Þetta er sannarlega von mín og von þeirra sem njóta samvista við Þig. Lofaður sért Þú, ó Drottinn veraldanna!
-Bahá'u'lláh*Ó leitandi sannleikans! Ef þú vilt að Guð opni augu þín, verður þú að ákalla Guð, biðja til Hans og samneyta Honum á miðnætti með svofelldum orðum:
Ó Drottinn, ég hef beint andliti mínu að konungsríki eindar Þinnar og er sokkinn í haf miskunnar Þinnar. Ó Drottinn, upplýs sjón mína með því að ég líti ljós Þitt á þessari dimmu nóttu og ger mig hamingjusaman með víni ástar Þinnar á þessum dásamlega tíma. Ó Drottinn! Lát mig heyra kall Þitt og ljúk upp fyrir augum mínum dyrum himins Þíns, svo að ég líti ljós dýrðar Þinnar og laðist að fegurð Þinni.
Sannarlega ert Þú gjafarinn, hinn örláti og miskunnsami, fyrirgefandinn.
-`Abdu'l-Bahá