Við fögnum með þakklátu hjarta miklum og jákvæðum viðbrögðum á öllum meginlöndum við fjögurra ára áætluninni, sem hleypt var af stokkunum á síðasta Ridvan.
Samráð álfuráðgjafa og andlegra þjóðarráða var upphafið á viðamiklu skipulagsferli, sem bæði aðstoðarráðgjafar og svæðisráð tóku þátt í. Í þessu ferli mótuðust séreinkenni áætlana fyrir einstakar þjóðir og landssvæði. En þessi hnattræna aðgerð gerði annað og meira en fæða af sér áform, sem eru auðkennandi fyrir hin ýmsu lönd; hún varð líka til þess að efla samstarf og tengsl beggja arma stjórnskipulagsins, jákvæðasti forboði þess sem koma skal.
Tákn um skjót áhrif þessrar áætlunar var hve hratt var hafist handa um að stofna næstum tvö hundruð þjálfunarstofnanir á síðustu tólf mánuðum. Margar hafa löngu lokið skipulagsstarfi, eru í raun byrjaðar að starfa og hafa haldið fyrstu námskeiðin. Áhrifin má einnig greina í hreyfingu brautryðjenda heima fyrir og á alþjóðavettvangi; í auknum framlögum til staðgengilssjóðsins; í undirbúningi til að tryggja að svæðisráð verði aðeins stofnuð á fyrsta degi Ridvan; í auknum áhuga á að halda reglulega bænafundi; í meiri viðleitni til að nýta listir í kennslu- og samfélagssstarfi. Allir þessir málaflokkar bera því vitni að vinirnir gera sér fulla grein fyrir mikilvægi þess að beina allri athyglinni að kröfum meginmarkmiðs áætlunarinnar, sem er að hraða til muna ferlinu sem leiðir til fjöldayfirlýsinga.
Við getum heldur ekki látið hjá líða að nefna þá þróun síðasta árs sem staðfestir mikla verðleika þeirrar margvíslegu viðleitni sem heimssamfélag okkur hefur sýnt og þess árangurs sem náðst hefur. Meðal þeirra eru, svo nokkur séu nefnd, kaup á íbúðinni að 4 Avenue de Camoens í París, þar sem Meistarinn ástkæri ‘Abdu'l-Bahá, bjó í sögulegri heimsókn sinni til borgarinnar; sérstakur fundur 14. ágúst síðastliðinn í alríkisdeild fulltrúaþings Braslíu til að minnast þess að 75 ár voru liðin frá því að Bahá’í trúin var fyrst kynnt þar í landi - einstæð opinber athöfn þar sem Amatu'l-Bahá Ruhíyyih Khánum var heiðursgestur. Auk þess má nefna nýjan miðlara Alþjóðlega Bahá’í samfélagsins á Veraldarvefnum, sem var settur upp í júlí á síðasta ári, ber nafnið “Bahá’í heimurinn” og hefur til þessa dags fengið meira en 50.000 heimsóknir frá rúmlega 90 löndum og landssvæðum, að meðaltali um 200 heimsóknir á dag. Byggingarframkvæmdirnir á Karmel-fjalli standa ekki að baki þessum afrekum. Þeim hefur verið haldið áfram af fullum þunga og hápunktur þeirra eru lok framkvæmda við marmarasúlnagöngin við Miðstöð fyrir rannsókn hinna helgu texta, ennfremur eru framkvæmdir hafnar við sjöundu hæð Alþjóðlegu kennslumiðstöðvarinnar og framkvæmdum er haldið áfram við stallana við grafhýsi Bábsins. Í þessu sambandi getum við ekki látið hjá líða að nefna lækkun að hluta til á vegarkaflanum sem stallarnir eiga að ná yfir. Auk þess kaup og niðurrif byggingar við rætur fjallsins sem var síðasti þrándur í götu þess að hægt væri að ljúka framkvæmdum við lægri stallana, sem hin dýrlega gönguslóð á að liggja yfir til hinnar helgu byggingar og þaðan áfram upp til kambsins á fjalli Guðs.
Nátengd þeirri framþróun sem lýst hefur verið eru stöðug framlög til Bogasjóðsins, sem uppfylltu markmið síðasta árs. Ljóst er að fjárþörf hefur að þessu leyti verið mætt með þeim stöðuga hetjuskap sem bæði ríkir og fátækir hafa sýnt og henni verður einnig að mæta á þeim árum sem eftir eru. En samtímis verða ráðin og vinirnir um allan heim að sýna hliðstæða viðleitni, jafn stöðuga og kappsfulla, til að mæta brýnum þörfum Alþjóðaþjóðs bahá’ía.
Svo heillavænleg byrjun á fjögurra ára áætluninni getur ekki annað en fært hjörtum allra sem tilheyra hnattrænu samfélagi okkar þá vissu að þeir séu fullfærir um að uppfylla þarfir skilaboðanna, sem mörkuðu upphaf áætlunarinnar, og eru útskýrðar í áætlunum viðkomandi ráða. Önnur og sérstaklega velkomin uppörfun, þegar við hefjum þetta annað ár, eru þær kringumstæður sem hafa gert kleift að endurstofna Andlega þjóðarráðið í Rúanda nú á Ridvan. Með þessum sigri fjölgar þeim Andlegu þjóðarráðum í 175, sem geta tekið þátt í áttunda alþjóðlega heimsþingi Bahá’ía, sem verður haldið á næsta Ridvan í Bahá’í heimsmiðstöðinni. Hversu heitt óskum við þess ekki að á þeim tíma, við miðbik áætlunarinnar, muni Baháí heimurinn hafa tekið stórt skref fram á við hvað varðar eflingu mannauða, þroskun andlegu ráðanna og þróun svæðissamfélaganna!
Tækifærin sem gefast á þeim skamma tíma sem er til loka þessarar aldar eru ólýsanlega dýrmæt. Aðeins sameinaðar og þrotlausar tilraunir vinanna allstaðar til að stuðla að fjöldayfirlýsingum sæma þeirri sögulegu stund. Mikil og óumflýjanleg ábyrgð hvílir þungt á hverri stofnun, sérhverjum meðlim samfélagsins sem sækir fram á við til þess hlutskiptis sem Guð hefur heitið. Þar sem aðeins gefst lítill tími til að vinna mikil afrek, megum við engan tíma missa og engu tækifæri glata. Verið þess fullviss, kæru vinir, að herskarar Abhá ríkisins eru reiðubúnir að skunda til hjálpar hverjum þeim sem vill rísa upp og bjóða fram þjónustu sína við framvindu þeirra áhrifamiklu andlegu atburða sem eru að gerast á þessum einstæðu dögum.
Allsherjarhús réttvísinnar